
My Brother is Pale hefur í nógu að snúast á Airwaves og spilar á sex tónleikum á hinum ýmsu stöðum. Á miðvikudeginum verða þeir á Reykjavík Backpackers klukkan 22:00, fimmtudeginum á Hressó klukkan 22:45, föstudeginum á Reykjavik Backpackers klukkan 20:00 og í Hinu húsinu klukkan 21:00, á laugardeginum á Kofa Tómasar frænda klukkan 22:10 og svo á Dillon á sunnudeginum klukkan 22:30.
My Brother is Pale er tiltölulega nýleg íslensk hljómsveit skipuð þeim Matthijs Van Issum, Ástvaldi Axel, Hannesi og Emil. Hljómsveitin hefur starfað í þessari mynd síðan í október 2011. Í vor og sumar tók hljómsveitin upp fimm laga plötu sem nefnist DP#01. Á henni eru fjögur frumsamin lög auk ábreiðu af Tim Buckley laginu „Song to the Siren“.









