
Lára Rúnars sendi frá sér nýverið sína fjórðu breiðskífu sem nefnist Moment en hún þykir dekkri og meira ögrandi en fyrri plötur. Á plötunni segist Lára vera undir áhrifum listamanna á borð við PJ Harvey og John Grant.
Með Láru á plötunni leika þeir Arnar Þór Gíslason á trommur, Jakob Smári Magnússon á bassa, Birkir Rafn Gíslason á gítar, Magnús Árni Öder á hljómborð og Hrafn Thoroddsen á hljómborð.
Öll lög eru eftir Láru sjálfa en textar eru eftir Láru og vin hennar Matthew Sever.
Lára mun halda útgáfutónleika í Viðeyjarstofu næstkomandi laugardag kl. 21:00. Miðaverð er 2.500 krónur og er ferð með Viðeyjarferjunni innifalið. Miða má nálgast á Miði.is









