
Tónlistarmaðurinn Jón Þór, fyrrum söngvari og gítarleikari Lödu Sport og Dynamo Fog, ætlar að halda upp á útgáfu sinnar fyrstu sólóskífu, Sérðu mig í lit?, á Faktorý föstudaginn 18. janúar. Einnig mun hið frábæra, melódíska brimrokkband Gang Related, sem gaf út plötuna Stunts and Rituals taka þátt í fjörinu.
Húsið opnar opnar klukkan 22:00 og tónleikarnir hefjast á slaginu 23:00. Miðaverð er 1000 krónur og platan Sérðu mig í lit? verður til sölu á góðu verði.





