
Hljómsveitin Bloodgroup er búin að hafa hljótt um sig undanfarið en hún hefur verið á fullu við að klára sína þriðju plötu sem kemur út þann 4. febrúar.
Platan ber nafnið Tracing Echoes og kemur út hjá Kölska á Íslandi, en erlendis á vegum Sugarcane Recordings og AdP, sem einnig gáfu út síðustu plötu sveitarinnar, Dry Land.
Þegar hefur fyrsti singull plötunnar „Fall“ fengið að hljóma á öldum ljósvakans en það hljómar einmitt hér að neðan.









