
Tónlistarárið hér heima var með eindæmum gott í fyrra og man undirritaður vart annað eins. Svo virðist sem góðærið ætli að halda áfram á nýju ári og hefst tónlistarárið 2013 byrjar með látum. Út er komin plata sem ekki hefur farið mikið fyrir en mun eflaust vera á hvers manns vörum áður en langt um líður. Plata þessi heitir Hymns og er með stórsveitinni Hymnalaya.
Á Hymns er öllu til tjaldað enda samanstendur hljómsveitin að strengja-, lúðra- og áslattarsveit auk gítara, píanós, orgels og söngs. Lögin á plötunni byggja á gömlum sálmum sem búið er að klæða í nútímalegan búning (indie/folk/ambient) en einnig má vel greina áhrif heims- og frumbyggjatónlistar.
Platan verður fáanleg til niðurhals endurgjaldslaust á vef Hymnalaya www.hymnalayamusic.com frá og með 8. febrúar næstkomandi og er nú einnig aðgengileg á tónlistarveitinni gogoyoko.









