
Hljómsveitin Bloodgroup hefur nú sent frá sér sína þriðju plötu og nefnist hún Tracing Echoes. Platan kemur út hjá Kölska á Íslandi en erlendis á vegum Sugarcane Recordings og AdP.
Hér má hlýða á næstu smáskífu plötunnar á eftir „Fall“, sem áður hefur fengið að hljóma hér á Rjómanum, en það er lagið „Nothing Is Written In The Stars“.










