Miðvikudaginn 19. júní verður blús og djass-söngkonan Brynhildur Oddsdóttir með tónleika á Café Rósenberg. Með henni leika Kjartan Valdemarsson á píanó, Birgir Bragason á kontrabassa og Óskar Kjartansson á trommur. Sérstakur gestur kvöldsins er söngvarinn Arnar Ingi Richardsson.
Brynhildur mun flytja frumsamið efni í bland við vel valdar blús og djassábreiður. Aðgangseyrir er 1500 kr og enginn posi. Tónleikarnir hefjast kl 21.00.