Iceland Airwaves 2010

Fjórði þáttur Sleepless in Reykjavík

Þá er fjórði þáttur Sleepless in Reykjavík kominn í loftið. Meðal efnis í þættinum er Kimono, Sudden Weather Change, heimildamyndina Where’s The Snow og tónlistarhátíðin Gæran sem fór fram á Sauðárkróki fyrr í sumar.

The Sleepless In Reykjavik WebTv Series – Episode 4 from Gussi – Sleepless In Reykjavik on Vimeo.

pixelstats trackingpixel

Útgáfutónleikar Orra Harðarsona í kvöld

Á dögunum sendi Skagamaðurinn Orri Harðarson frá sér sína fimmtu sólóplötu, Albúm. Ekki verður annað sagt en að Orri fari vel af stað með þessa plötu, því að í Morgunblaði dagsins mærir Arnar Eggert Thoroddsen, poppskríbent, plötuna mjög og gefur henni fjórar stjörnur. Þá er Albúm plata vikunnar á Rás 2 þessa dagana og almennt virðist mikil stemning fyrir þessari nýjustu afurð Orra, en fimm ár eru liðin síðan hann síðast sendi frá sér plötu og var þá tilnefndur á Íslensku tónlistarverðlaununum fyrir „plötu ársins.“

Á Rosenberg í kvöld mun Orri flytja Albúm í heild sinni, í félaga við gítarleikarann Ragnar Emilsson. Þeir félagar munu einnig leika lög af eldri plötum Orra, allt frá frumburðinum Drög að heimkomu, en fyrir þá plötu varð Orri „nýliði ársins“ á Íslensku tónlistarverðlaununum 1994. Átta ár eru liðin síðan að Orri hélt síðast formlega tónleika.

Útgáfutónleikar Orra á Rosenberg hefjast kl. 21:30.

Orri Harðarson – Perfekt par

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Orri Harðarson – Albúm

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

pixelstats trackingpixel

Nýtt Íslenskt

Tónlist.is gefur frá og með deginum í dag frítt til niðurhals lagið “Þitt Auga” með Sigurði Guðmundssyni og Memfismafíunni. Er þetta gert í tilefni frumsýningar myndarinnar Sumarlandið þann 17. september næstkomandi en lagið er einmitt að finna í henni. Lagið er einnig að finna hérna fyrir neðan auk lags með Nóru sem er í boði Reykjavík Grapevine sem og lög með Amiina, Nýdönsk, Miri og Lifun sem Dr. Gunni býður uppá á sínum ágæta vef.

Sigurður Guðmundsson og Memfismafían – Þitt Auga

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Nóra – Opin Fyrir Morði

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Amiina – What are we waiting for?

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Nýdönsk – Umboðsmenn drottins

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Miri – Hamingjulagið

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Lifun – Ein stök ást

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

pixelstats trackingpixel

Útgáfutónleikar Deep Jimi á Faktorý

Rokksveitin Deep Jimi & the Zep Creams heldur tónleika í tilefni af útgáfu á fjórðu breiðskífu sveitarinnar Better When We’re Dead sem nú fæst í verslunum. Tónleikarnir verða haldnir á Faktorý við Smiðjustíg á fimmtudagskvöld og hefjast tónleikarnir klukkan 23:00.

Hljómsveitin sem var stofnuð fyrir hartnær tuttugu árum og hefur hún verið mis afkastamikil í gegnum tíðina. Eftir hana liggja nú fjórar breiðskífur og tvær smáskífur. Deep Jimi hefur alltaf sótt mikið í sarp sjöunda áratugarins, sérstaklega hipparokks í þyngri kantinum. Á nýjustu afurð sveitarinnar er ekki um neina kúvendingu að ræða en aðspurðir segjast piltarnir hafa reynt að vanda sig meira en oft áður bæði hvað varðar lagasmíðar og hljómgæði. Þorvaldur Bjarni sér um upptökur og útsetningar og má heyra þess glögg merki í góðum hljómi skífunnar.

Húsið opnar kl. 22:30 og byrja tónleikarnir stundvíslega kl. 23:00. Aðgangseyrir er 1.500 kr.

Meðfylgjandi eru tvö tóndæmi af samnefndri síðustu plötu sveitarinnar

Deep Jimi & the Zep Creams – He Puts It In You And You’re All His

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Deep Jimi & the Zep Creams – Raging Bull

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

pixelstats trackingpixel

Kría Brekkan heldur tónleika í Norræna Húsinu

Tónlistarkonan Kría Brekkan heldur tónleika í Norræna húsinu mánudagskvöldið 27. september kl. 22, en tónleikarnir eru hluti af dagskrá RIFF, Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík.

Á tónleikunum mun Kría flytja frumsamda tónlist undir kvikmyndinni The Fall of the House of Usher eftir Jean Epstein, en myndin er frá árinu 1928 og er byggð á sögu eftir Edgar Allan Poe.

Kría heitir réttu nafni Kristín Anna Valtýsdóttir, en hún gerði garðinn frægan með hljómsveitinni múm um langt skeið. Hún hefur þó unnið með mörgum öðrum sveitum, svo sem Stórsveit Nix Noltes, Slowblow, Mice Parade og Animal Collective.

Kría Brekkan – Solush

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Kría Brekkan – Wildering (Suil Version)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Kria Brekkan – Place of You

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

pixelstats trackingpixel

Folk í Fréttum: Cocos Lovers

Berfættir síðskeggjaðir sveitamenn og banjóplokkandi fjölskyldufólk, syngjandi hressilegar samsöngsmelódíur, vel þróaðar af nokkur hundruð ára þjóðlagaarfi Bretlands. Hljómar eins og eitthvað sem þú hefur heyrt áður?

Engu að síður mæli ég sterklega með því að þú tékkir á ensku folkpoppsveitinni Cocos Lovers.

Tónlistin er að vísu í stíl við mikið af því sem hefur verið að gerast í hinni bresku ný-þjóðlagasenu undanfarið (Laura Marling, Noah and the Whale, Mumford  & Sons), en bara  ekki jafn slepjulegt. Ekki það að hér sé eitthvað sérstaklega framsækið eða móðgandi á ferð (nema þá fyrir utan hörmulega bjánalegt nafnið), en fílingurinn er bara svo stórkostlega viðkunnalegur og spilagleðin einlæg.

Hljómsveitina skipa nokkrar systur, bræður og hjón frá smábænum Deal í Kent-héraði á Englandi. Bakvarðasveitin er hinn venjubundna uppstilling: trommur, bassi, og tveir gítarar. Við bætast þó fiðlur, þverflauta, banjó og stundum mandólín og skapa hljóðheim undir áhrifum frá amerískri, enskri og írskri alþýðutónlist, ásamt því að sækja í áhrifavalda úr indípoppi nútímans.

Fyrsta breiðskífa sveitarinnar, Johannes, kom út ekki fyrir alls löngu og tekst þeim ágætlega að koma frábærri sviðsframkomunni á fast form. Kókoselskendurnir hafa verið að vekja æ meiri athygli hjá tónlistarunnendum víðsvegar um heim og geri ég fastlega ráð fyrir að þau muni fylgja í fótspor Mumfordstrákanna og fá konunglega ofspilun í breska konungsveldinu og víðar á næstunni. Njóttu þess meðan þú getur!

Cocos Lovers – Father

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Cocos Lovers – The Howling Wind

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

pixelstats trackingpixel

Kimi Records fagnar afmæli sínu

Útgáfufélagið Kimi Records verður þriggja ára þann 11. september og mun fagna því í Havarí laugardaginn næstkomandi. Hljómsveitirnar Reykjavík!, Morðingjarnir og Nolo munu leika þar fyrir gesti milli 14-17. Að sjálfsögðu verða í boði afmælisveitingar. Í tilefni af afmælinu munum við efna til sérstakrar afmælisútsölu í kjallara Havarí á geisladiskum, vínylplötum og öðrum varningi (aðallega bolum). Þar verður hægt að fylla á plötusafnið á kostakjörum.

Opnunartímar útsölu eru sem hér segir:

Föstudagur 10. september milli 12-18
Laugardagur 11. september milli 12-18
Föstudagur 17. september milli 12-18
Laugardagur 18. september milli 12-18

Kimi Records hefur verið starfandi síðan á haustmánuðum 2007 og gefið út jaðarmúsík af ýmsum stærðum og gerðum. Kimi dreifir einnig plötum fyrir fjölmargar útgáfur (innlendar sem erlendar) og tónlistarmenn á Íslandi. Kimi Records hefur einnig staðið að útgáfu á erlendum mörkuðum og hefur gefið út níu plötur í Evrópu og Bandaríkjunum. Á næstu mánuðum koma tvær til viðbótar. Fyrirtækið rekur einnig menningarmiðstöðina Havarí í samvinnu við Svavar Pétur Eysteinsson og Berglindi Häsler (úr Skakkamanage) og sinnir tónleikahaldi og öðrum viðburðum. Félagið er með aðstöðu í miðborg Reykjavíkur og útjaðri Gent í Belgíu.

Reykjavík! – Cats

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Morðingjarnir – ’81

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Nolo – Pretty Face

Skakkamanage & Prins Polo – Partyþoka

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

pixelstats trackingpixel

Dungen

Nýsækadelikusveitin Dungen er eitt af merkilegri tónlistarfyrirbærum sem Svíþjóð hefur alið af sér. Sveitin, sem leidd er af undrabarninu Gustav Ejstes (sem semur öll lögin, syngur og spilar á flest öll hljóðfærin inn á plötur Dungen) hlaut fyrst athygli utan heimalandsins árið 2004 þegar fjórða plata hennar, Ta De Lungt, kom út. Í kjölfarið leiddi Dungen nokkrar tónleikaferðir um Bandaríkin og kom m.a. fram í þætti Conan O’Brien. Sem er í raun afar merkilegt þegar tekið er tillit til þess að öll lög sveitarinnar eru sungin á sænsku og tónlistin hvorki nútímaleg né sérstaklega aðgengileg.

Dungen spilar sækadelískt gítarrokk sem hljómar svo gamaldags og ekta að jafnvel hörðustu músiknördar trúa því að þarna sé á ferð einhver 30-40 ára gömul snilld sem þeir fóru einhverra hluta vegna algerlega á mis við. Enda er félagi Ejstes mjög harður á því hvernig tónlist Dungen skuli flutt og tekin upp og hikar ekki við að grafa upp gamlar græjur til að ná fram hinu fullkomna sándi.

Þann 30. síðasta mánaðar kom út sjötta plata Dungen og heitir hún því huggulega nafni Skit i Allt. Meðfylgjandi er myndbandið við titillagið og lokalag plötunnar “Marken låg stilla”.

Dungen – Skit i Allt

Dungen – Marken låg stilla

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

pixelstats trackingpixel

Þriðjudagsmix

Þá er haustið loksins hafið af alvöru og eins og lög gera ráð fyrir fylgir þungum hrammi þess aukið stress. Leti og léttvægi sumarsins víkur fyrir kröfum um aukin afköst nú þegar yfirmenn og kúnnar taka að tínast aftur til vinnu eftir sumarfrí. Þetta þýðir einnig að minni tími gefst til að sinna tónlistarbloggi sem unnið er af einskærri hugsjón. En maður reynir þó. Hér eru allavega nokkur vel valin lög til þess að lífga upp á þennan þriðjudagsmorgun.

Maserati – Pyramid of the Moon

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

FUNDERSTORM – 2000 Kids

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Brando Skirts – Bohomeless

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Manic Street Preachers – Umbrella (Rihanna cover)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Mean Wind – Gleam Leaf Green

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Darlingside – Malea

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Edward Sharpe and the Magnetic Zeros – Home

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

MP3 hýsing í boði : MBV, Chromewaves, thefmly, Kickkicksnare og Obscure Sound

pixelstats trackingpixel

Skúli mennski og hljómsveitin Grjót á Faktorý

Miðvikudagskvöldið 8. september ætlar Skúli Mennski og hljómsveitin Grjót að halda tónleika ásamt hljómsveitinni Munaðarleysingjarnir á Faktorý.
Húsið opnar kl. 21:00 og hefjast tónleikarnir stundvíslega kl. 22:00. 1000 kr. aðgangseyrir

Skúli Mennski sendi frá sér, um miðjan síðasta vetur, sína fyrstu breiðskífu, Skúli mennski og hljómsveitin Grjót, sem hefur að geyma tíu ný íslensk dægurlög um ástina, sorgina og lífið og eitthvað annað í bland. Auk þess að spila lög af plötunni leika Skúli og hljómsveit innlent og erlent efni úr ýmsum áttum t.d. blús, djass og þjóðlagatónlist.

Skúli Mennski – Heilræðavísa