Úr innhólfinu
Rjómanum berst reglulega talsvert af pósti þar sem kynnt er ný tónlist og upprennandi flytjendur. Talsvert er síðan ritstjóri fór yfir þessar innsendingar síðast en tók sig þó loks taki og fór yfir hvern einasta póst samviskusamlega. “Inbox nirvana” var náð og nokkur ágætis lög komu upp úr krafsinu.
Eru niðurstöður þessarar yfirferðar birta hér með.
The Sweet Serenades – Die Young
Tekið af plötunni Balcony Cigarettes.
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Miniature Tigers – Cannibal Queen
Tekið af plötunni Tell It To The Volcano.
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Don Diablo and Sidney Samson – Rise Up
Afrakstur samvinnu tveggja heitustu plötusnúða Hollands.
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
The Lonely Forest – We Sing In Time
Tekið af plötunni We Sing the Body Electric.
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Zechs Marquise – Sirenum Scopuli
Systrasveit Mars Volta. Lagið er tekið af plötunni Our Delicate Stranded Nightmare.
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Fang Island – Life Coach
Tekið af samnefndri plötu sveitarinnar.
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Blasfemea – Maria
Tekið af plötunni Galaxia Tropicalia.
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Sarah Elizabeth Foster – Be My Friend Always
Tekið af plötunni Gardening From The Ground Up Part 1.
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.


Bonnie ‘Prince’ Billy, eða Will Oldham eins og mamma hans kallar hann líklega, er síður en svo á þeim buxunum að draga sig í hlé. Undanfarin ár hefur kappinn haft glænýja plötu tilbúna þegar vetur fer að líða undir lok. Hann hefur reyndar líka verið duglegur að gefa út tónleikaplötur og ep á milli svo að Oldham aðdáendur hafa ætíð einhverja nýja útgáfu til að gleðjast yfir. Þetta árið er engin undantekning og í lok mars er 10 laga hljómplatan The Wonder Show of the World væntanleg, en í þetta skiptið fær Bonnie ‘Prince’ Billy sveitina The Cairo Gang með sér. Eins og vanalega er það Drag City sem gefur út vestan hafs og Domino í Evrópu, en fyrrnefnda City útgáfan sendi í vikunni út lag til kynningar, “Play, Guitar, Play”, sem verður reyndar ekki með á plötunni – en ætti þó líklega að gefa nasasjón af skífunni:
Sú plata sem kemur hvað sterkust inn á nýju ári er nýjasta afurð skosku sveitarinnar Frightened Rabbit. Mun hún vera þriðja breiðskífa sveitarinnar og hennar allra besta ef eitthvað er að marka umtalið. Platan, sem ber nafnið The Winter of Mixed Drinks og kemur út þann fyrsta mars næstkomandi, hefur verið í nánast stanslausri spilun hjá mér síðustu tvo daga þökk sé glæsilegu framtaki Frightened Rabbit að setja hana í heild sinni á 
Jú, ég er enn að synda í gegnum og reyna að halda mér á floti í þeim öldum og stórsjó af eðal tónlist sem skellur á ströndum landsins. Eða eitthvað í þá áttina. Kannski óþarfa háfleygt orðaval til að lýsa því að maður sé að drukkna í tónlist? Veit ekki. Eflaust.
Mér hefur því miður ekki gefist tími til að birta hér almennilegan þriðjudags lagalista í lengri tíma. Það er því ljóst að upp hefur safnast dágóður slatti af unaðstónum hverskonar og skal þeim básúnað yfir lesendur hér með. Inniheldur hann m.a. hina mjög svo spennandi Melbourne sveit Love Connection, nýtt efni frá Efterklang og Seabear, frábært lag með frændum vorum í Oh No Ono og heil tvö lög með Lightspeed Champion (eða Devonté Hynes eins og hann heitir víst) sem sett hefur bloggheima í ljósa loga með nýjustu plötu sinni Life is Sweet! Nice to Meet You, en platan sú verður að teljast algjör skyldueign á hverju heimili.
Joanna Newsom gefur út sína þriðju plötu áður en febrúar mánuður er liðin og hefur nú verið skýrt frá því að hún muni verða þreföld og innihalda 18 lög. Aðdáendur geta því farið að setja sig í stellingar fyrir skífuna sem heitir Have One On Me og geta strax tekið smá forskot á sæluna því nú hafa þrjú lög þegar verið gerð opinber. Þau lofa mjög góðu og ættu að væta ýmsa munna, tékkum á þeim:



Recent Comments