Yfirlit yfir 'Indie'

Nýtt MGMT lag!

Hin afar hressa sveit MGMT gefur út sína aðra plötu, Congratulations, þann 13. apríl næstkomandi. Vafalaust eru margir orðnir spenntir enda var frumburður sveitarinnar, Oracular Spectacular, með skemmtilegri plötum undanfarinna ára. Platan sú innihélt margan smellinn en í þetta skiptið munu MGMT liðar ekki gefa út eina einustu smáskífu af plötunni! Hvort innihald hennar sé svo óvinsældavænt er ekki gott að segja enn, en fyrsta lagið sem heyrist af skífunni, “Flash Delirium”, er a.m.k. ekki alveg jafn grípandi við fyrstu hlustun og svo mörg önnur lög sveitarinnar. Sækja má lagið frítt á whoismgmt.com eða bara hlusta á það hér:

MGMT – Flash Delirium

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

—-

Viðbót!

Svo virðist sem annað lag af plötunni hafi komist á netið í dag – sjálft titillagið – og því um að gera að bæta því við…

MGMT – Congratulations

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

VN:F [1.8.2_1042]
Rating: 5.0/5 (1 vote cast)
VN:F [1.8.2_1042]
Rating: +1 (from 1 vote)

Úr innhólfinu

Rjómanum berst reglulega talsvert af pósti þar sem kynnt er ný tónlist og upprennandi flytjendur. Talsvert er síðan ritstjóri fór yfir þessar innsendingar síðast en tók sig þó loks taki og fór yfir hvern einasta póst samviskusamlega. “Inbox nirvana” var náð og nokkur ágætis lög komu upp úr krafsinu.

Eru niðurstöður þessarar yfirferðar birta hér með.

The Sweet Serenades – Die Young
Tekið af plötunni Balcony Cigarettes.

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Miniature Tigers – Cannibal Queen
Tekið af plötunni Tell It To The Volcano.

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Don Diablo and Sidney Samson – Rise Up
Afrakstur samvinnu tveggja heitustu plötusnúða Hollands.

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

The Lonely Forest – We Sing In Time
Tekið af plötunni We Sing the Body Electric.

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Zechs Marquise – Sirenum Scopuli
Systrasveit Mars Volta. Lagið er tekið af plötunni Our Delicate Stranded Nightmare.

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Fang Island – Life Coach
Tekið af samnefndri plötu sveitarinnar.

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Blasfemea – Maria
Tekið af plötunni Galaxia Tropicalia.

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Sarah Elizabeth Foster – Be My Friend Always
Tekið af plötunni Gardening From The Ground Up Part 1.

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

VN:F [1.8.2_1042]
Rating: 0.0/5 (0 votes cast)
VN:F [1.8.2_1042]
Rating: +1 (from 1 vote)

Fleiri xx remixx

Ein allra besta plata síðasta árs var frumburður bresku krakkanna í The xx sem einfaldlega hét XX. The xx blandar á einstaklega heillandi og mínimalískann hátt jaðarpoppi við elektróník svo úr verður ansi skemmtileg blanda. Lög sveitarinnar virðast líka henta einkar við til rímixunar og hafa á undanförnum mánuðum hrannast upp fjölmörg remix – og nokkur mashup – af lögum sveitarinnar. Fyrir þó nokkru tók ég saman nokkur fín remix frá sveitinni en nú hefur bæst svo mikið við að ástæða er til að tína til nokkur í viðbót …

The xx – Crystalised (Keljet Remix)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

The xx – Crystalised (Popular Damage Assimilation)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

The xx – Crystalised (Eric Solomon Remix)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

The xx – Islands (CHLLNGR Remix)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

The xx – Infinity (MartyParty Dubstep Mix)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

The xx – Shelter (Flinch Remix)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

The xx – Basic Space (Pariah Remix)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

The xx – Basic Space (diskJokke Remix)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

The xx – Night Time (What Kind of Breeze Do You Blow Extended Edit)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

The xx – Stars (Dave Wrangler Remix)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Biggie vs Tupac vs The xx – Runnin With The xx (Quix vs Elliot Blend)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

DMX vs The xx – The xx Gon’ Give It To Ya

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

The xx – Jamie xx Mini Mix

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

VN:F [1.8.2_1042]
Rating: 5.0/5 (2 votes cast)
VN:F [1.8.2_1042]
Rating: +2 (from 2 votes)

Ég minni á Elliott Smith

Ég trúi ekki öðru en að það sé sárt að vera tilnefndur til óskarsverðlauna en síðan tapa… á móti Céline Dion. Þetta gerðist þegar að Elliott Smith keppti við „My heart will go on“ úr Titanic með laginu  „Miss Misery“ úr Good Will Hunting. Ég og óskarsverðlaunaakademían erum með mjög ólíkan tónlistarsmekk.

Ef Elliott Smith væri veður þá væri hann skýjað, lyngt kvöld í íslenskum nóvember. Það væri kalt, rólegt og kjöraðstæður fyrir skammdegisþunglyndi. Þegar þið heyrið Elliott Smith syngja þá finnst ykkur eins og þið séuð að horfa á þungann vasa á  þunnu glerborði, ótrúlega fallegt, en þetta hlýtur að brotna bráðum. Þetta lætur mann meta hans meira fyrir vikið, við verðum að njóta hans áður en hann brotnar.

Elliott brotnaði 21. október árið 2003. Hann dó úr stungusárum sem voru líklegast af hans eigin höndum í miðju rifrildi við kærustu sína sem hafði læst sig inná baði. Kærastan hans þurfti að eiga það óþægilega hlutskipti að draga hnífinn úr brjósti hans. Sjálfsmorðsbréfið var skrifað á post it miða, það var kjarnyrt og kraftmikið. „I’m so sorry—love, Elliott. God forgive me.“.

Eins og með marga tónlistarmenn þá verður Elliott Smith betri eftir því sem þú hlustar meira á hann. Það er eitthvað við hann sem venst ótrúlega vel. Hann er ekki besti söngvari sem þú finnur en sú tónlist sem hann semur syngur enginn betur en hann. Hann er með einkennandi rödd, stíl og sjarma sem læsir þig í hlekki sem þú vilt ekki komast úr. Gott dæmi um þá hlekki sem er eitt kover af Lennon laginu „Jelous Guy“.

Það er leiðinlegt að hugsa til þess að bestu lögin hans gætu verið þau sem hann átti eftir að semja, menn hafa nógan tíma til að þroskast 34. ára gamlir. Þunglyndið hans var bæði bölvun og blessun, það hjálpaði honum að semja dimm, grá og falleg lög; það endaði svo á því að stinga hann í hjartastað. Þetta er rómantískur dauðdagi vel hæfandi nútímaskáldi, algerlega óþarfi og sorglegur um leið. Lögin samt lifa, sem betur fer fyrir okkur.

VN:F [1.8.2_1042]
Rating: 5.0/5 (2 votes cast)
VN:F [1.8.2_1042]
Rating: +3 (from 3 votes)

Oh No Ono – Eggs

Einkunn: 4,0
Útgáfuár: 2010
Útgáfa: Friendly Fire

Ein athygliverðasta plata sem út kemur á þessu annars frábæra nýja tónlistarári er Eggs, önnur plata dönsku sveitarinnar Oh No Ono. Hér er á ferðinni marglaga síð-sækadelískt verk sem er afar tilkomumikið og magnþrungið og yfirhlaðið smáatriðum en um leið ljúft og einlægt og hægir á þegar við á eða, og þá til að framkalla ákveðin hughrif, þegar leikar standa sem hæst.

Öll einkenni sækadelískrar tónlistar eru til staðar og þau notuð óspart. Hin ýmsu hljóðfæri eru spiluð afturábak og furðuleg hljóð kastast um í hinum mikla hljóðheimi sem sveitin hefur skapað, eins og til að ringla hlustandann og koma honum úr jafnvægi. Íburðamiklar strengjaútsetningar, sem magnast hægt og rólega í styrk og tilburði í hverju lagi, í bland við forvitnilegt úrval blásturhljóðfæra fullkomna svo hina hugvíkkandi heild. Jú, svo má nú ekki gleyma sítarnum, mellotroninu, lata bjöllubassanum og simbalnum. Hvað væri alvöru sækadelika án þessara hljóðfæra?

Allt er þetta svo tekið og hrært saman við glaðlega, nútímalega og taktfasta popptónlist, hlaðna hljóðgervlum og með örlitlum leifum af raftónlist sem kennd er við hið umdeilda tímabil “eitís”. Jafnvel má með góðum vilja greina diskó á stöku stað. Einnig verður að nefna  söngleikja þemað sem skítur upp kollinum á plötunni af og til og svo auðvitað augljósar tilvísanir í afkvæmi meistara Phil Spector, Wall of Sound, en því bregður fyrir í pródúseringunni nokkuð oft.

Útkoman er einstaklega frumleg, þó ekki einstök, og á köflum fullkomlega fjarstæðukennd samsuða ólíkra tónlistarstíla. Einskonar hlaðborð strauma og stefna sem á einhvern ótrúlegan hátt nær að mynda furðu heilsteypt verk. Skiljanlega löðrar allt í tónlistarlegum hliðstæðum og tilvitnunum og tilvísanir má finna í nánast öðrum hverjum tón. Slíkt þætti mörgum ekki gott kaffi en í þessu tilfelli hefur tekist svo vel upp að fáir ættu að vera óánægðir með uppáhellinginn.

Ef einhverskonar bræðingur af Moody Blues, Sgt. Pepper með Bítlunum, MGMT, Blonde Redhead, Air og Of Montreal hljómar spennandi í þínum eyrum þá ættir þú sannarlega ekki að láta þessa plötu fram hjá þér fara.

Oh No Ono  – Helplessly Young

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

VN:F [1.8.2_1042]
Rating: 5.0/5 (1 vote cast)
VN:F [1.8.2_1042]
Rating: +2 (from 2 votes)

Mark Linkous úr Sparklehorse látinn

Þær sorglegu frétttir hafa borist að Mark Linkous, forsprakki Sparklehorse, hafi tekið eigið líf í gær, laugardaginn 6. mars.

Mark Linkous var eini fasti meðlimur Sparklehorse og gaf út fjórar plötur undir því nafni; Vivadixiesubmarinetransmissionplot (1995), Good Morning Spider (1998), It’s A Wonderful Life (2001) og Dreamt for Light Years in the Belly of a Mountain (2006), og gerði auk þess samstarfsplöturnar In The Fishtank (2009) með Fennesz og Dark Night of the Soul (2009) ásamt Danger Mouse og David Lynch, en meðal fjölmargra gesta á henni voru Flaming Lips, Frank Black úr Pixies, Julian Casablancas úr The Strokes og Iggy Pop. Þar fyrir utan vann Linkous mikið með snillingnum Daniel Johnston og ekki ómerkari listamenn en Tom Waits og PJ Harvey hafa spilað inn á plötur Sparklehorse.

Af þessari löngu upptalningu má sjá að Linkous var vel metinn meðal annarra tónlistarmanna þó að tónlist hans sjálfs hafi helst hlotið athygli meðal tónlistargrúskara. Slíkt er að sjálfsögðu mikil synd enda var hann frábær og einlægur lagasmiður og án ef einn af helstu snillingum jaðarpoppsins.

Til þess að minnast Mark Linkous – og vonandi kynna einhverjum fyrir Sparklehorse – hef ég valið nokkur lög sem ættu að gefa nasasjón af ferli hans. Við byrjum á fyrsta laginu sem Sparklehorse sendi frá sér, “London”, og endum af tveimur lögum af Dark Night of the Soul.

Sparklehorse – London (af London EP (1995))

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Sparklehorse – Homecoming Queen (af Vivadixiesubmarinetransmissionplot (1995))

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Sparklehorse – Piano Fire (af It’s A Wonderful Life (2001))

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Sparklehorse – Gold Day (af It’s A Wonderful Life (2001))

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Sparklehorse – Getting It Wrong (af Dreamt for Light Years in the Belly of a Mountain (2006))

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Danger Mouse & Sparklehorse – Just War (Ft. Gruff Rhys) (af Dark Night of the Soul (2009))

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Danger Mouse & Sparklehorse – Daddy’s Gone (Ft. Nina Persson) (af Dark Night of the Soul (2009))

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

VN:F [1.8.2_1042]
Rating: 5.0/5 (3 votes cast)
VN:F [1.8.2_1042]
Rating: +1 (from 1 vote)

Sunnudagsrúnturinn

Oft er fátt betra á sunnudögum en að fá sér smá rúnt. Kaupa sér ís og keyra um hverfi borgarinnar. Þetta á við um Netið og víðlendur þess líka. Ísinn verður að kaffibolla og farartækið er Eldrefur eða Alnetskönnuður. Maður stoppar við hér, heyrir eitt lag þar og á öðrum stað er slegið upp síðbúnu teiti og á enn öðrum stað situr fólk íhugult undir þungum tilvistarkrepputónum og starir út í tómið.

Ég ætla á rúntinn. Vopnaður kaffibolla smelli ég mér af stað.

Southerly – Trials
Af plötunni Champion Of The Noisy Negativists.

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Rykarda Parasol -Covenant
Af plötunni For Blood and Wine.

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Club 8 – Western Hospitality
Af plötunni The People’s Record sem kemur út þann 12. Maí næstkomandi.

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Sambassadeur – Stranded
Af plötunni European.

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Fang Island – Daisy
Af nýútkominni samnefndri plötu sveitarinnar.

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

N.A.M.B. – L.O.N.
Af plötunni BMAN. Ítalskur huldu-kvartett sem vakið hefur talsvert umtal undanfarið.

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Læt fylgja með myndband við lagið “Radiorace” með N.A.M.B. Flott stop-motion á ferð þarna.

VN:F [1.8.2_1042]
Rating: 5.0/5 (1 vote cast)
VN:F [1.8.2_1042]
Rating: +1 (from 1 vote)

Worm Is Green – March On!

Eins og fram kom hér á Rjómanum fyrir nokkru stefndi skagasveitin Worm Is Green á að gefa út eina EP plötu á mánuði frá útgáfu þeirra nýjustu plötu en hún bar heitið Glow. Síðasta föstudag kom út fjórða EP platan af níu en á henni fær lagið “March On!” endurhljóðblöndun frá fjórum vel völdum listamönnum.

Þeir sem höndum fara um lagið er Roger O’Donnell, fyrrum meðlimur The Cure, Íslandsvininn Kaido Kirikmae, sem hefur spilað hér á landi í þó nokkur skipti og Northern Light Orchestra, sem er með frábært mix, dasvænt og poppað. Rúsínan í pylsuendanum er síðan Futuregrapher sem er einn athyglisverðasti og duglegasti raftónlistar maður íslands um þessar mundir en hann er með gríðarlega flott mix.

Worm Is Green eru að sjálfsögðu á gogoyoko.

Worm Is Green – March On ! (Futuregrapher remix)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

VN:F [1.8.2_1042]
Rating: 4.0/5 (4 votes cast)
VN:F [1.8.2_1042]
Rating: +2 (from 4 votes)