Yfirlit yfir 'Íslenskt'

Gus Gus – Thin Ice

Hér gefur að líta myndbandið við lagið “Thin Ice” að síðustu Gus Gus plötu, 24/7. Myndbandinu var leikstýrt af þeim Heimi Sverrissyni og Jón Atla Helgasyni.

VN:F [1.8.2_1042]
Rating: 2.0/5 (1 vote cast)
VN:F [1.8.2_1042]
Rating: +1 (from 1 vote)

Föstudagsfílingur

Í tilefni þess að það er föstu/flöskudagur hefur Rjóminn ákveðið að bjóða lesendum sínum upp á þetta „gamla“ og góða myndband og lag með Gleðisveit Ingólfs. Lagið heitir hinu ljúfsára nafni „Djamm“ og fjallar um hversu gaman er að drekka bjór í góðra vina hópi – ekki slæmt!

Hver er annars þessi Ingólfur sem gleðisveitin kennir sig við? Ekki þó Ingó Veðurguð?

VN:F [1.8.2_1042]
Rating: 5.0/5 (2 votes cast)
VN:F [1.8.2_1042]
Rating: +1 (from 1 vote)

Love Is The Devil

Jebb, ást er djöfullinn sjálfur – segja Sólstafir. Myndbandið að neðan er við lag af plötu þeirra Köld (lesið Rjómadóm um hana hér) sem kom út fyrir þónokkru en fór svotil undir radarinn og í felur í plötubúðum og er rétt að gægjast upp úr núna, eftir að þeir drengir voru staðfestir á Hróarskeldu. Myndbandið er nokkurra mánaða gamalt en tókst þó algjörlega að fara framhjá mér, og því ekki úr vegi að skella því hér inn ef aðrir lentu í því sama. Hugmyndina að söguþræðinum átti Guðmundur Óli Pálmason, trommari hljómsveitarinnar, en  hann leikstýrði einnig. Gunnar B. Guðbjörnsson tók upp og klippti. Njótið!

VN:F [1.8.2_1042]
Rating: 4.3/5 (3 votes cast)
VN:F [1.8.2_1042]
Rating: +1 (from 1 vote)

Worm Is Green – March On!

Eins og fram kom hér á Rjómanum fyrir nokkru stefndi skagasveitin Worm Is Green á að gefa út eina EP plötu á mánuði frá útgáfu þeirra nýjustu plötu en hún bar heitið Glow. Síðasta föstudag kom út fjórða EP platan af níu en á henni fær lagið “March On!” endurhljóðblöndun frá fjórum vel völdum listamönnum.

Þeir sem höndum fara um lagið er Roger O’Donnell, fyrrum meðlimur The Cure, Íslandsvininn Kaido Kirikmae, sem hefur spilað hér á landi í þó nokkur skipti og Northern Light Orchestra, sem er með frábært mix, dasvænt og poppað. Rúsínan í pylsuendanum er síðan Futuregrapher sem er einn athyglisverðasti og duglegasti raftónlistar maður íslands um þessar mundir en hann er með gríðarlega flott mix.

Worm Is Green eru að sjálfsögðu á gogoyoko.

Worm Is Green – March On ! (Futuregrapher remix)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

VN:F [1.8.2_1042]
Rating: 4.0/5 (4 votes cast)
VN:F [1.8.2_1042]
Rating: +2 (from 4 votes)

Itemhljóð & Veinan

Hinn viðkunnanlegi óhljóðalistamaður AMFJ hefur endurútgefið hljóðsnældu sína Itemhljóð & Veinan sem kom út í takmörkuðu upplagi í júlí á síðasta ári. Snemma í haust seldist hún upp og hefur hún því verið endurútgefin vegna fjölda áskorana.

AMFJ kom fyrst fram á sjónarsviðið sumarið 2008 þegar hann kom fram á FALK tónleikum með listamönnum á borð við Auxpan, Krakkbot og Oberdada von Brutal. Eftir mikið tónleikahald síðastliðin vetur fór hann í hljóðverið Dýflussuna og tók upp þetta verk til að setja á 60 mínútna snældu. Aðspurður um þetta undarlega val á miðli segir hann: “það var alltaf bara kassettutæki á æskuheimilinu og þannig kynntist ég tónlist. Mér finnst eðlilegt að ég gefi út að minnsta kosti eina hljóðsnældu á æfinni.”

Fyrir þá sem ekki eru svo lánsamir að eiga forláta kassettutæki þurfa ekki að örvænta því að í umslagi snældunnar leynist kóði sem nota má til að nálgast stafræna útgáfu af verkinu inni á heimasíðu FALK, www.falkworld.net

Itemhljóð & veinan hefur fengið þokkalega umfjöllun í fjölmiðlum en Florian Zuhlke setti verkið í sinn topp 5 lista yfir bestu útgáfur ársins 2009 í yfirlits tölublaði Grapevine í Janúar síðastliðinn.

Fyrstu útgáfu snældunnar var dreift af AMFJ sjálfum og seld á tónleikum auk þess sem síðustu eintökin voru seld í versluninni Havarí, Austurstræti. Í þetta skipti hefur Kimi Records tekið að sér dreifingu Itemhljóðanna og mun hún fást meðan birgðir endast í öllum betri plötubúðum landsins; í Smekkleysu Laugavegi og 12 Tónum Skólavörðustíg auk Havarí á Austurstræti.

VN:F [1.8.2_1042]
Rating: 0.0/5 (0 votes cast)
VN:F [1.8.2_1042]
Rating: +1 (from 1 vote)

Ný plata For a Minor Reflection

Strákarnir í For a Minor Reflection hafa verið iðnir að undanförnu. Þeir kláruðu nýja plötu fyrir jól og er nú verið að leggja lokahönd á hana. Fyrir þá sem geta ekki beðið eftir að heyra gripinn þá má heyra nokkur brot úr lögum á pledgemusic.com, sem er hin sniðugasta. Þar er jafnframt hægt að kaupa nýju plötuna í forsölu auk fjölda varnings sem ekki fæst hvar sem er. Hljómsveitin hefur svo ákveðið að deila hluta af ágóðanum með Læknum án landamæra. Til að sjá pledge-síðunni sveitarinnar, klikkið hér.




VN:F [1.8.2_1042]
Rating: 5.0/5 (2 votes cast)
VN:F [1.8.2_1042]
Rating: +2 (from 2 votes)

Stafrænn Hákon

Sjötta afurð tónlistarmannsins Ólafs Josephssonar, betur þekktur undir nafninu Stafrænn Hákon kemur út á vegum bandarísku útgáfunnar Darla Records og fer í drefingu hjá 12 tónum.  Afurðin hefur fengið nafnið Sanitas og inniheldur 12 lög.  Stafrænn Hákon hefur verið iðinn við útgáfu frá því snemma á árinu 2001 er hann sendi frá sér sína fyrstu skífu.  Síðan þá liggja eftir hann 6 breiðskífur og fjöldinn allur af stuttskífum.

Á Sanitas hefur Stafrænn Hákon farið í samstarf við hina afar rótgrónu bandarísku jaðarútgáfu Darla Records sem unnið hefur með listamönnum á borð við Robin Guthrie, Harold Budd, My Morning Jacket, Manual og Piano Magic svo einhverjir séu nefndir.  Sanitas er full af grípandi og seiðandi melódíum sem fanga hlustendann svipað og þegar svangur reiður emúi fangar bráð sína.  Stafrænn hefur með þessari skífu fært sig töluvert frá hljóðheimi síðustu afurða og hallast meira að þyngri hljóðheimi og popp skotnum lagasmíðum. Lagasmíðarnar eru því orðnar beittari og sveimkenndur hljóðheimurinn hefur verið þynntur upp með þungum gítartónum og útpældum trommuslögum.

Í laginu ”Second to none” má greina hversu gítarheimurinn er orðinn þéttur og í leiðinni harðari, þó undir niðri krauma fallegar raddir og melódíur sem mynda skemmtilega samblöndu af síðrokki , þungu rokki og poppi sem hægt væri að lýsa sem einskonar Power-Ambienti.  Stafrænn lætur þó ekki sigrast á popp skotnu efni heldur siglir inní torkenndan þyngri hljóðheim eins og má heyra dátt í hinni margþrungnu lagasmíð tileinkuð stjörnuleikaranum Val Kilmer, sem annars hefur haft mikil áhrif á stefnu Stafræns Hákons.  Í sjö af 12 lögum á Sanitas má heyra söng frá Magnúsi Frey, Daniel Lovegrove og Minco EggersmanSamúel White sem hefur verið hægri hönd Stafræns Hákons í gegnum tíðina leggur til sterkar og grípandi lagasmíðar í 4 lögum.  Samstarf Stafræns við hinn enska Daniel Lovegrove heldur áfram hér sem fyrr og ekki má gleyma fögrum gítarlínum frá Lárusi Sigurðsyni. Stafrænn Hákon hefur aldrei hljómað betur en á þessari skífu sem ætti að gleðja hungraða tónlistarunnendur jafnt sem flíspeysu klæddann vísítölufjölskyldumann.

Stafrænn Hákon – Emmergreen

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Stafrænn Hákon – Temporality

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

VN:F [1.8.2_1042]
Rating: 5.0/5 (2 votes cast)
VN:F [1.8.2_1042]
Rating: +4 (from 4 votes)

Tónlistin úr Draumalandinu komin út

Þeir sem sáu Draumalandið hér um árið og felldu tár eða tvö yfir fallegri tónlistinni ættu að kætast, en nú er tónlistin úr myndinni loks komin út. Það er Valgeir Sigurðsson sem á heiðurinn af tónlistinni og sem fyrr er raftónlistin ráðandi. Stórar útsetningar ráða ríkjum á plötunni (sem heitir einnig Draumalandið) en kammersveit með yfir tuttugu hljóðfæraleikurum kemur við sögu sem og góðir gestir Bedroom Community útgáfunnar o.fl., þau Hildur Guðnadóttir, Nico Muhly, Sam Amidon, Daníel Bjarnason, Borgar Magnason og Nadia Sirota. Hefur Draumalandið jafnframt hlotið tilnefningu til Eddunnar fyrir bestu kvikmyndatónlist, en hún fer fram á laugardaginn nk.

Hægt er að kaupa plötuna hér.


VN:F [1.8.2_1042]
Rating: 5.0/5 (1 vote cast)
VN:F [1.8.2_1042]
Rating: +1 (from 1 vote)