Gamlir gullmolar
Ég er alltaf að grúska og grafa upp eitthvað gamalt og gleymt tónlistarkyns. Þetta er svona áhugamál innan áhugamáls. Sumt er furðulegt, annað funky as hell. Sumt er hreinlega stórskrítið og annað hreint út sagt gargandi snilld. Yfirleitt er þessi tónlist, sem kemur frá öllum heimshornum, frá hinu svokallaða ‘60 tímabili en það þykir mér algert gullaldartímabil í tónlist.
Hér eru nokkrir gullmolar sem komið hafa upp úr krafsinu en þarna má m.a. finna tónlist frá Svíþjóð, Þýskalandi, Tyrklandi og Indlandi:
Asha Bhosle & Chorus – Dum Maro Dum
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Elias Rahbani – Dance of Maria
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
The National Gallery – Barbaric, Classical, Solemn
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Brother Soul – Cookies
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Joy and The Hit Kids – Run Away
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Pugh Rogefeldt – Love, Love, Love
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Þess má til gamans geta að DJ Shadow hljóðsmalaði einmitt hinn sænska Pugh Rogefeldt sem heyra mátti hér að ofan og má útkomuna heyra í lagi hans “Mutual Slump”. Nánar um það hér.


Á dögunum kom út platan Beak> með hljómsveit sem einnig nefnir sig Beak>. Sú sveit kemur frá Bristol í Bretlandi en trommari sveitarinnar, Geoff Barrow, er einmitt drifkrafturinn á bak við eina þekktustu sveit þeirrar borgar, Portishead. Beak> var stofnuð í upphafi þessa árs af Barrow og tveimur félögum hans, Billy Fuller og Matt Williams, og sömdu og tóku upp frumburð sinn á tólf dögum. Tónlistin er undir miklum krautrokk áhrifum (með smá tilraunamennsku og sækadelíu í bland) en þau áhrif mátti einnig greina á hinni frábæru Third sem Portishead gaf út í fyrra. Beak> gengur þó mun lengra í átt til áhrifavaldanna og ætti músíkin að höfða sérstaklega til þeirra sem gaman hafa af Faust, Neu!, Can og fleiri öðlings krautrokkurum … tékkum á tveimur tóndæmum:



Recent Comments