Prince Polo
Talandi um bönd sem telja Pavement til sinna áhrifavalda, þá er hérna glænýtt og funheitt indiepopp band frá Salt Lake City í Utah; Prince Polo. Þeir félagar eru allir 18 ára um þessar mundir og eru hallir undir hina svokölluðu “Twee” stefnu sem gengur að einhverju leiti út á það að spila grípandi popplög, oft með barnalegum textum og rifnum gítörum, og stundum skiptir meira máli hvað maður gerir heldur en hvað maður getur. Þetta má glöggt heyra á fyrstu afurð sveitarinnar, stafrænu breiðskífunni Pallies, sem er gefin út á netinu. Trommurnar halda ekki takti og gítarsólóin eru afleit, en það skiptir bara akkúrat engu máli, þetta er miklu skemmtilegra svona.
Bandið varð til í afmælisveislu vinar þeirra í nóvember síðastliðnum. Eini gallinn var að bara tveir af fjórum kunnu eitthvað á hljóðfæri, en slíkt þarf ekki að standa hljómsveitum fyrir þrifum. Eins og góðum böndum sæmir æfðu þeir og lærðu af reynslunni, og tóku svo upp heila plötu sem sannast sagna er stútfull af slögurum … og þeir gefa hana frítt á netinu! Og eins og Ramones-bræður hér áður fyrr, þá deila þeir Matt, Christian, Chris og Sasha allir eftirnafninu Polo. Þess má geta að Christian bjó um tíma í Póllandi, en þaðan er nafnið komið. Hlustum nú á nokkra vel valda slagara.
Prince Polo – Do you believe in Dinosaurs?
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Prince Polo – Kuddle Kat
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Prince Polo – Kitten King
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Hér má sækja alla plötuna: Mediafire | Prince Polo á Facebook

Rokksveitin ófrýnilega Les Savy Fav gefur út plötuna Root for Ruin um miðjan september og mun það vera fimmta hljóðversskífa bandsins. Fyrsta smáskífan af plötunni, “Let’s Get Out of Here”, kemur út á morgun en eins og gerist oft nú á gervihnattaöld þá mun platan vera þegar lekin á netið. Þið getið hlaðið smáskífunni frítt niður í þessu handhæga boxi að neðan eða bara hlustað á lagið og annað til beint af Rjómanum.
Það eru víst varla fréttir að Daft Punk skuli sjá um tónlistina fyrir kvikmyndina Tron: Legacy enda hefur mikið verið rætt um það af tónlistar- sem og kvikmyndaáhugamönnum undanfarna mánuði. Kvikmyndin verður frumsýnd í lok ársins og kemur hljóðskorið líklega út um svipað leyti.
Eitt af mínum uppáhaldslögum það sem af er þesus ári er hið frábæra “Marathon” með hjónabandinu Tennis sem var
Hin fína sveit Deerhunter gefur nú smáskífu sína “Revival” frítt á netinu en lagið er fyrsta smáskífan af fjórðu breiðskífu bandsins, Halcyon Digest, sem væntanleg er í september. Með því að kíkja á
Ástralska sveitin Cut Copy vakti mikla athygli fyrir fyrstu tvær plötur sínar þar sem hljóðgervlapopp 9. áratugarins var nútímavætt með góðum árangri. Ný plata er væntanleg frá sveitinni í janúar á næsta ári og þó að hún hafi ekki enn hlotið nafn hefur hljómsveitin ákveðið að hleypa lagi af henni netið. Lagið markar smá stefnubreytingu á bandinu, en synthar eru færri en oft áður, og verður maður ekki bara að fanga smá framþróun?
Með hljómsveitanafnið Teenage Cool Kids er nokkuð ljóst að meðlimir sveitarinnar eru annað hvort óþolandi sjálfsdýrkendur eða kaldhæðnir húmoristar. Hvort sem er þá hljómar tónlist þeirra alls ekki illa og er þessi Texas sveit að gefa út sína þriðju breiðskífu, Denton After Sunset, í haust. Tónlist sveitarinnar minnir á kæruleysislegt indí og lo-fi rokk 10. áratugarins – sem er að sjálfsögðu hið besta mál! Tékkum á nokkrum glóðvolgum lögum af væntanlegri plötu:
Hljómsveitin The Pass frá Louisville, Kentucky hefur verið að vekja athygli í netheimum undanfarna mánuði með dansskotnu popprokki sínu. Sveitin gaf út EP plötuna Colors fyrr á þessu ári og er nú að vinna að breiðskífunni Burst sem kemur út í haust. Tékkum á tveimur lögum af EP-inu og hressilegu myndbandi við lagið “Treatment of The Sun” af væntanlegri breiðskífu … og ég mana alla til þess að læra dansinn …
Tónlistarmaðurinn Owen Pallett, sem eitt sinn spilaði á Íslandi undir nafninu Final Fantasy, gaf á dögunum út EP plötuna Lewis Takes His Shirt Off. Skífan inniheldur endurhljóðblandanir á nokkrum lögum af plötunni Heartland sem kom út fyrr á þessu ári. Domino útgáfan ákvað að gefa stafræna útgáfu plötunnar í nokkra daga og má hlaða henni niður á 






Nýlegar Athugasemdir