Archive for the “Music Mess” category

Reykjavík Music Mess: Sunnudagur

by Rjóminn on apríl 21, 2011

Lokadagur Reykjavík Music Mess skartaði stjörnum hátíðarinnar, Deerhunter, sem voru síðastir á svið á Nasa. Rjóminn hélt þangað til að berja herlegheitin augum en við blasti hálf tómt Nasa, líkt og fyrri daga hátíðarinnar. Rjómanum þykir því ekki úr vegi (…)

Read the rest of this entry »

Myndir frá Reykjavík Music Mess

by Rjóminn on apríl 20, 2011

Um helgina fór fram tónlistarhátíðin Reykjavík Music Mess og þótti hún heppnast með ágætum. Mikill fjöldi listamann koma fram á hátíðinni og var ljósmyndari Rjómans, Daníel Pétursson, að sjálfsögðu á staðnum til að festa það sem fram fór á filmu.

Reykjavík Music Mess: Laugardagur

by Rjóminn on apríl 17, 2011

Annar í Messi átti sér stað þetta laugardagskvöldið og var margt að sjá og heyra að vanda. Eins og fyrr var Norræna húsið staður lýríkunnar líkt og á föstudagskvöldið en nú hafði Sódóma Reykjavík verið skipt út fyrir Nasa við (…)

Read the rest of this entry »

Reykjavík Music Mess: Föstudagur

by Rjóminn on apríl 16, 2011

Á föstudagkvöldinu var byrjað að Messa yfir fólki eða Messa í því. Já, Rjóminn elskar orðaleiki jafn heitt og tónlistarhátíðir. Þar sem það er verið að halda Reykjavík Music Mess í fyrsta sinn vissu Rjómverjar raunar ekki við hverju ætti (…)

Read the rest of this entry »

Reykjavik Music Mess: Fossils (DK)

by Daníel Hjálmtýsson on apríl 15, 2011

Danski ofurdúettinn Fossils heimsækir klakann með tromuskinn og bassagítar að vopni. Þungarokkið er keyrt í botn og fuzz-ið er til fyrirmyndar. Hraðinn er góður og stuðið mergjað. Aðdáendur hinnar amerísk/íslensku sveitar DLX/ATX ættu hér að faðma frændur sína í Fossils. (…)

Read the rest of this entry »

Reykjavik Music Mess: Samaris

by Daníel Hjálmtýsson on apríl 15, 2011

Nýbakaðir sigurvegarar Músíktilrauna, Samaris, reyna frumraun sína á sviði tónlistarhátíða þessa helgina. Sveitin sem leikur draumkennt trip-hop í anda The Knife og Portishead státar af tveimur ungum meyjum og einum hraustum pilti. Önnur meyjanna, Jófríður Ákadóttir, mun vera annar helmingur (…)

Read the rest of this entry »

Reykjavik Music Mess: Nolo

by Daníel Hjálmtýsson on apríl 15, 2011

Ungu piltarnir í Nolo heilluðu undirritaðan þegar þeir stigu öruggir og ósmeykir á svið hins liðna Karamba og léku þar sín lög við góðar undirtektir. Það er liðinn töluverður tími síðan það var og gáfu Nolo út sína fyrstu plötu (…)

Read the rest of this entry »

Reykjavík Music Mess: Swords of Chaos

by Rjóminn on apríl 15, 2011

Ólátabelgirnir í Swords of Chaos troða upp á Reykjavík Music Mess rétt eftir miðnætti í kvöld á Sódóma. Piltarnir eru nýkomnir úr tónleikaferð um Bandaríkin sem tókst prýðisvel og var tónleikum sveitarinnar hrósað í hástert. Rjóminn tekur undir það hrós (…)

Read the rest of this entry »

Havarí opnar Bríarí og miðar á staka viðburði á Music Mess

by Rjóminn on apríl 15, 2011

Tómstundahúsið Havarí lagðist í dvala í janúarlok og hefur um nokkurt skeið leitað logandi ljósi að föstum viðverustað í miðborg Reykjavíkur án árangurs. Til að drepast ekki úr leiðindum á meðan á þessari húsnæðisleit stendur ákváðu aðstandendur Havarí að fara (…)

Read the rest of this entry »

Reykjavík Music Mess: Sóley

by Rjóminn on apríl 15, 2011

Sindri Már Sigfússon er ekki eini meðlimur Seabear sem heldur úti spennandi hliðaverkefni – en Sóley Stefánsdóttir sýndi fram á það með smáskífu sinni Theater Island sem kom út í fyrra. Theater Island er heillandi og draumkennd og hlaut hún (…)

Read the rest of this entry »

Reykjavik Music Mess: Mugison

by Daníel Hjálmtýsson on apríl 15, 2011

Skeggjaði vestfirðingurinn Örn Elías (Mugison) hefur ekki beinlínis farið huldu höfði á síðustu árum. Með glænýja breiðskífu í bígerð og fimm skífur á bakinu, hefur Mugison skipað sér sess sem einn ástsælasti tónlistarmaður Íslands. Mugison hefur verið duglegur að boða (…)

Read the rest of this entry »

Reykjavík Music Mess: Einar Örn

by Rjóminn on apríl 15, 2011

Einar Örn Benediktsson þarf nú vart að kynna fyrir neinum – en það er þó kannski ágætt að minna fólk á hann. Borgarfulltrúinn og indípabbinn hefur gert garðinn frægan með ekki ómerkilegri böndum en Purrki Pillnikk, Kukli, Sykurmolunum og nú (…)

Read the rest of this entry »