Föstudagsblandan
Það er föstudagur. Vinnuvikan að enda komin og langþráð helgi bíður eins og óþolinmóður krakki í biðröð eftir að taka við. Fyrir þá sem ætla að sletta úr klaufunum í kvöld ákvað ég að henda í eins og eitt indie mix fyrir þá sem vilja tjútta aðeins en meika ekki endilega einhverja dynjandi danstónlist.
Ég vona að þetta hreyfi við einhverjum og gleðji. Skál!
Figurines – Other Plans
Af plötunni Skeleton sem kom út 2006.
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Pete and The Pirates – She Doesn’t Belong To Me
Af plötunni Little Death sem kom út 2007.
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
The Radio Dept – Heaven’s On Fire
Af plötunni Clinging To A Scheme sem kemur út þan 21. apríl næstkomandi.
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Mates Of State – Fraud In The 80’s
Af plötunni Bring It Back sem kom út 2006.
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Sambassadeur – Between The Lines
Af plötunni Subtle Changes sem kom út 2007.
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Aqueduct – As You Wish
Af plötunni Or Give Me Death frá 2007.
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
The Rentals – Friends of P
Af plötunni Return of The Rentals frá 1995.
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
The Sound of Arrows – Danger!
Af EP plötunni Danger! frá 2008.
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
controller.controller – PF
Af plötunni X-Amounts sem kom út 2005.
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Hooray for Earth – Simple Plan
Af samnefndri plötu frá 2007.
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Fyrir rúmu ári gaf bandaríska sveitin Here We Go Magic út samnefndan frumburð sinn og vakti nokkra athygli fyrir meðal tónlistarnörda. Lang besta lag þeirrar plötu, “Fangela”, var það sem kom flestum á sporið enda fellur það einnig auðveldlega í hóp með eftirminnilegri lögum síðasta árs. Here We Go Magic eru nú tilbúnir með aðra plötu, sú nefnist Pigeons og kemur út í byrjun júní. Það er Secretly Canadian sem gefur út og hefur útgáfan ákveðið að gefa fyrsta singulinn af plötunni, “Collector”, sem má sækja
Rokksveitin ódrepandi The Fall gefur út nýja plötu í næsta mánuði sem heita mun Our Future Your Clutter og er sú fyrsta sem sveitin gefur út hjá Domino útgáfunni. Þetta er þó 28. breiðskífa hljómsveitarinnar og samkvæmt heimasíðu þeirra hafa The Fall gefið út 40 safnplötur og 35 tónleikaplötur svo það má segja að sveitin sé með þeim útgáfuglaðari. Það er að sjálfsögðu sjálfur Mark E. Smith sem stjórnar The Fall með harðri hendi, líkt og undanfarin 33 ár, og skiptir hann oftar um hljóðfæraleikara en nærbuxur. Þó að enn sé langt í útgáfudag Our Future Your Clutter hefur platan lekið á netið og við fyrstu hlustanir er nú óhætt að mæla með gripnum. Platan jafnast kannski ekki við fjölmörg meistaraverk sveitarinnar en The Fall eru í hörkustuði og skila sínu eins og svo ansi oft áður.
Ein af rísandi stjörnum í bloggheimum um þessar mundir er hljómsveitin Cults. Sveitin er skipuð er tveimur ungmennum frá San Diego sem um þessar mundir hafast við í New York og spila ótrúlega heillandi og grípandi jaðarpopp sem gleðja ætti alla sem ekki eru fýlupúkar.
Rjómanum berst reglulega talsvert af pósti þar sem kynnt er ný tónlist og upprennandi flytjendur. Talsvert er síðan ritstjóri fór yfir þessar innsendingar síðast en tók sig þó loks taki og fór yfir hvern einasta póst samviskusamlega. “Inbox nirvana” var náð og nokkur ágætis lög komu upp úr krafsinu.
Ein allra besta plata síðasta árs var frumburður bresku krakkanna í The xx sem einfaldlega hét XX. The xx blandar á einstaklega heillandi og mínimalískann hátt jaðarpoppi við elektróník svo úr verður ansi skemmtileg blanda. Lög sveitarinnar virðast líka henta einkar við til rímixunar og hafa á undanförnum mánuðum hrannast upp fjölmörg remix – og nokkur mashup – af lögum sveitarinnar. Fyrir þó nokkru
Ein athygliverðasta plata sem út kemur á þessu annars frábæra nýja tónlistarári er Eggs, önnur plata dönsku sveitarinnar Oh No Ono. Hér er á ferðinni marglaga síð-sækadelískt verk sem er afar tilkomumikið og magnþrungið og yfirhlaðið smáatriðum en um leið ljúft og einlægt og hægir á þegar við á eða, og þá til að framkalla ákveðin hughrif, þegar leikar standa sem hæst.



Recent Comments