Nýtt MGMT lag!

Hin afar hressa sveit MGMT gefur út sína aðra plötu, Congratulations, þann 13. apríl næstkomandi. Vafalaust eru margir orðnir spenntir enda var frumburður sveitarinnar, Oracular Spectacular, með skemmtilegri plötum undanfarinna ára. Platan sú innihélt margan smellinn en í þetta skiptið munu MGMT liðar ekki gefa út eina einustu smáskífu af plötunni! Hvort innihald hennar sé svo óvinsældavænt er ekki gott að segja enn, en fyrsta lagið sem heyrist af skífunni, “Flash Delirium”, er a.m.k. ekki alveg jafn grípandi við fyrstu hlustun og svo mörg önnur lög sveitarinnar. Sækja má lagið frítt á whoismgmt.com eða bara hlusta á það hér:

MGMT – Flash Delirium

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

—-

Viðbót!

Svo virðist sem annað lag af plötunni hafi komist á netið í dag – sjálft titillagið – og því um að gera að bæta því við…

MGMT – Congratulations

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Bookmark and Share
VN:F [1.8.5_1061]
Rating: 5.0/5 (4 votes cast)
VN:F [1.8.5_1061]
Rating: +3 (from 3 votes)
pixelstats trackingpixel

Ornette Coleman áttræður

Við skrifum nú ekki oft um jazz hér á Rjómanum og mættum ef til vill gera meira af því. Eins og af fyrirsögninni má ráða er ansi góð ástæða fyrir þessum skrifum því nú í dag á bandaríski saxófónleikarinn Ornette Coleman stórafmæli og fagnar 80 árum á þessari jarðkringlu. Fyrir þá sem ekki þekkja er Ornette Coleman einn af helstu frumkvöðlum jazz tónlistarinnar og hefur verið í framvarðarsveit framúrstefnujazzins í yfir 50 ár.

Þekktasta og áhrifamesta hljómplata Coleman er líklega The Shape of Jazz to Come (1959) en í allt hefur hann gefið út um fimmtíu plötur á ferlinum en fyrir síðustu plötu sína, Sound Grammar (2006), hlaut Coleman bæði Grammy og Pulitzer verðlaunin.

Ornette Coleman hefur haft gífurleg áhrif, bæði í jazzi sem og í öðrum tónlistarstefnum, og meðal fjölmargra ólíkra tónlistarmanna sem tilgreint hafa hann sem áhrifavald eru  John Zorn, Frank Zappa, Lou Reed, Patti Smith, Sonic Youth, Moby, Red Hot Chili Peppers og Yo La Tengo.

Við óskum Ornette að sjálfsögðu til hamingju með afmælið og rifjum upp nokkur gömul lög úr smiðju meistarans.

Ornette Coleman – Eventually (af The Shape of Jazz to Come (1959))

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Ornette Coleman – Kaleidoscope (af This Is Our Music (1960))

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Ornette Coleman – Rock The Clock (af Science Fiction (1972))

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Bookmark and Share
VN:F [1.8.5_1061]
Rating: 5.0/5 (2 votes cast)
VN:F [1.8.5_1061]
Rating: +3 (from 3 votes)
pixelstats trackingpixel

Öll tónlistin af SXSW hátíðinni nú á torrent

Það hlut að koma að því að einhver tæki sig til að tæki allt það gífurlega magn tónlistar sem í boði er á vegum SXSW hátíðarinnar og safnaði saman í torrent svo hægt sé að hala því niður öllu í einu. Einhverjir framtaksamir einstaklingar hafa nú tekið sig til og opnað síðuna Home of the (UNOFFICIAL) SXSW Torrents þar sem nálgast má samantekt tónlistar allt aftur til 2005.

Þó þetta sé “Unofficial” þá er þetta allt saman fullkomlega löglegt þar sem efnið var þegar öllum aðgengilegt og hafði verið það síðustu ár.

Njótið vel!

Bookmark and Share
VN:F [1.8.5_1061]
Rating: 0.0/5 (0 votes cast)
VN:F [1.8.5_1061]
Rating: +1 (from 1 vote)
pixelstats trackingpixel

Úr innhólfinu

Rjómanum berst reglulega talsvert af pósti þar sem kynnt er ný tónlist og upprennandi flytjendur. Talsvert er síðan ritstjóri fór yfir þessar innsendingar síðast en tók sig þó loks taki og fór yfir hvern einasta póst samviskusamlega. “Inbox nirvana” var náð og nokkur ágætis lög komu upp úr krafsinu.

Eru niðurstöður þessarar yfirferðar birta hér með.

The Sweet Serenades – Die Young
Tekið af plötunni Balcony Cigarettes.

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Miniature Tigers – Cannibal Queen
Tekið af plötunni Tell It To The Volcano.

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Don Diablo and Sidney Samson – Rise Up
Afrakstur samvinnu tveggja heitustu plötusnúða Hollands.

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

The Lonely Forest – We Sing In Time
Tekið af plötunni We Sing the Body Electric.

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Zechs Marquise – Sirenum Scopuli
Systrasveit Mars Volta. Lagið er tekið af plötunni Our Delicate Stranded Nightmare.

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Fang Island – Life Coach
Tekið af samnefndri plötu sveitarinnar.

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Blasfemea – Maria
Tekið af plötunni Galaxia Tropicalia.

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Sarah Elizabeth Foster – Be My Friend Always
Tekið af plötunni Gardening From The Ground Up Part 1.

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Bookmark and Share
VN:F [1.8.5_1061]
Rating: 0.0/5 (0 votes cast)
VN:F [1.8.5_1061]
Rating: +2 (from 2 votes)
pixelstats trackingpixel

Fleiri xx remixx

Ein allra besta plata síðasta árs var frumburður bresku krakkanna í The xx sem einfaldlega hét XX. The xx blandar á einstaklega heillandi og mínimalískann hátt jaðarpoppi við elektróník svo úr verður ansi skemmtileg blanda. Lög sveitarinnar virðast líka henta einkar við til rímixunar og hafa á undanförnum mánuðum hrannast upp fjölmörg remix – og nokkur mashup – af lögum sveitarinnar. Fyrir þó nokkru tók ég saman nokkur fín remix frá sveitinni en nú hefur bæst svo mikið við að ástæða er til að tína til nokkur í viðbót …

The xx – Crystalised (Keljet Remix)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

The xx – Crystalised (Popular Damage Assimilation)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

The xx – Crystalised (Eric Solomon Remix)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

The xx – Islands (CHLLNGR Remix)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

The xx – Infinity (MartyParty Dubstep Mix)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

The xx – Shelter (Flinch Remix)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

The xx – Basic Space (Pariah Remix)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

The xx – Basic Space (diskJokke Remix)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

The xx – Night Time (What Kind of Breeze Do You Blow Extended Edit)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

The xx – Stars (Dave Wrangler Remix)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Biggie vs Tupac vs The xx – Runnin With The xx (Quix vs Elliot Blend)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

DMX vs The xx – The xx Gon’ Give It To Ya

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

The xx – Jamie xx Mini Mix

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Bookmark and Share
VN:F [1.8.5_1061]
Rating: 5.0/5 (4 votes cast)
VN:F [1.8.5_1061]
Rating: +2 (from 2 votes)
pixelstats trackingpixel

Localice efnir til rokkhátíðar á Nasa í apríl

Eitt mest spennandi fyrirtæki Íslands í dag, Localice Iceland, heldur sannkallaða rokkveislu á Nasa við Austurvöll þann 9.apríl n.k. Fyrirtækið hefur í nokkur ár unnið að vinnslu myndbanda fyrir hljómsveitir sem og önnur verkefni en kveiktu ekki undir bossum landans almennilega fyrr en myndbandið við lagið Midnight Getaways eftir Cliff Clavin herjaði á skjáveröldina nýverið.

Þær hljómsveitir sem koma fram eru noise, Cliff Clavin, For A Minor Reflection, Ten Steps Away, Nevolution og ætlar Ragnar Sólberg sömuleiðis að snúa aftur ásamt nýjum og gömlum félögum í hljómsveitinni Sign. Lítið hefur heyrst frá þeim síðastnefndu undanfarið en nú er víst nýtt efni í vinnslu og allt að gerast. Sign, ásamt noise og Cliff Clavin hafa allir haft ánægju af samstarfi við Localice undanfarið og er nú beðið eftir tveimur glænýjum myndböndum frá noise auk glænýs myndbands frá Cliff Clavin. Localice-krúið hefur þá einnig unnið með Dikta nýverið við myndband við lagið Thank You og vakið, eins og áður, góða athygli á sér með því samstarfi.

Tónleikarnir eru eins og áður segir þann 9.apríl og má fylgjast vel með framgöngu mála hér.

Verið ekki feimin að skoða verkin hérna !

Bookmark and Share
VN:F [1.8.5_1061]
Rating: 0.0/5 (0 votes cast)
VN:F [1.8.5_1061]
Rating: +2 (from 2 votes)
pixelstats trackingpixel

Ég minni á Elliott Smith

Ég trúi ekki öðru en að það sé sárt að vera tilnefndur til óskarsverðlauna en síðan tapa… á móti Céline Dion. Þetta gerðist þegar að Elliott Smith keppti við „My heart will go on“ úr Titanic með laginu  „Miss Misery“ úr Good Will Hunting. Ég og óskarsverðlaunaakademían erum með mjög ólíkan tónlistarsmekk.

Ef Elliott Smith væri veður þá væri hann skýjað, lyngt kvöld í íslenskum nóvember. Það væri kalt, rólegt og kjöraðstæður fyrir skammdegisþunglyndi. Þegar þið heyrið Elliott Smith syngja þá finnst ykkur eins og þið séuð að horfa á þungann vasa á  þunnu glerborði, ótrúlega fallegt, en þetta hlýtur að brotna bráðum. Þetta lætur mann meta hans meira fyrir vikið, við verðum að njóta hans áður en hann brotnar.

Elliott brotnaði 21. október árið 2003. Hann dó úr stungusárum sem voru líklegast af hans eigin höndum í miðju rifrildi við kærustu sína sem hafði læst sig inná baði. Kærastan hans þurfti að eiga það óþægilega hlutskipti að draga hnífinn úr brjósti hans. Sjálfsmorðsbréfið var skrifað á post it miða, það var kjarnyrt og kraftmikið. „I’m so sorry—love, Elliott. God forgive me.“.

Eins og með marga tónlistarmenn þá verður Elliott Smith betri eftir því sem þú hlustar meira á hann. Það er eitthvað við hann sem venst ótrúlega vel. Hann er ekki besti söngvari sem þú finnur en sú tónlist sem hann semur syngur enginn betur en hann. Hann er með einkennandi rödd, stíl og sjarma sem læsir þig í hlekki sem þú vilt ekki komast úr. Gott dæmi um þá hlekki sem er eitt kover af Lennon laginu „Jelous Guy“.

Það er leiðinlegt að hugsa til þess að bestu lögin hans gætu verið þau sem hann átti eftir að semja, menn hafa nógan tíma til að þroskast 34. ára gamlir. Þunglyndið hans var bæði bölvun og blessun, það hjálpaði honum að semja dimm, grá og falleg lög; það endaði svo á því að stinga hann í hjartastað. Þetta er rómantískur dauðdagi vel hæfandi nútímaskáldi, algerlega óþarfi og sorglegur um leið. Lögin samt lifa, sem betur fer fyrir okkur.

Bookmark and Share
VN:F [1.8.5_1061]
Rating: 5.0/5 (3 votes cast)
VN:F [1.8.5_1061]
Rating: +3 (from 3 votes)
pixelstats trackingpixel

Sannleikurinn um Bitter Sweet Symphony

Eflaust vita flestir tónlistarspekingar söguna af tilurð lagsins “Bitter Sweet Symphony” með hljómsveitinni Verve og lagaflækjurnar, deilurnar og dómsmálið sem sveitin stóð í við Rolling Stones út af því. Fyrir þá sem ekki vita þá skal sagan rakin hér í stuttu máli.

Árið 1966 kom út platan The Rolling Stones Songbook með The Andrew Oldham Orchestra en á henni mátti finna útsetningar af nokkrum þekktum Rolling Stones lögum fyrir sinfóníuhljómsveit. Á þessari ágætu plötu, sem í ljósi sögunnar verður að teljast alger gullmoli, er m.a. að finna lagið “The Last Time” sem Stones höfðu gefið út og gert vinsælt árið áður. Úr þessi lagi, í flutningi og útsetningu The Andrew Oldham Orchestra, sömdu Richard Ashcroft og félagar í Verve um að fá að nota, það sem þeir töldu vera “stuttan hljóðbút”, sem undirstöðu í lag sem seinna kom til með að heita “Bitter Sweet Symphony”.

Þarna liggur einmitt hundurinn grafinn. Skilningur Verve á því hvað kalla má “stuttan hljóðbút” er klárlega ekki sá sami og annara og ætti ekki að vefjast fyrir neinum sem heyra vill að túlkun þeirra á þessu hugtaki er afar frjálsleg. Eftir að hafa heyrt “Bitter Sweet Symphony” þegar það kom út um sumarið 1997 fóru ABKCO Records, fyritæki Allen Klein sem á höfundaréttinn af efni Stones frá fyrstu árum sveitarinnar, í mál við Verve og útgáfufélag þeirra. Það skyldi engan undra að samkomulag náðist í málinu, þar sem höfundarétturinn var dæmdur ABKCO Records og þeim félugum Jagger og Richards sem sömdu upphaflega lagið, enda ljóst að “Bitter Sweet Symphony” var lítið annað en endurgerð af Andrew Oldham útgáfunni með trip-hop takti og texta eftir Ashcroft.

Nú er komið að þér, lesandi góður, að dæma sjálfur um í þessu máli. Hvort kom nú á undan, hænan eða eggið? Hvað finnst þér?

The Verve – Bitter Sweet Symphony

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

The Andrew Oldham Orchestra – The Last Time

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Bookmark and Share
VN:F [1.8.5_1061]
Rating: 4.5/5 (2 votes cast)
VN:F [1.8.5_1061]
Rating: +3 (from 3 votes)
pixelstats trackingpixel